Íbúðar málverk og hugsanir um ferðina í kjölfarið

Íbúðar málverk og hugsanir um ferðina í kjölfarið Sýning gríska listamannsins Lefteris Jakúmakis „Íbúðarmálverk og hugsanir um ferðina í kjölfarið ”

Fréttir

Íbúðar málverk og hugsanir um ferðina í kjölfarið

Íbúðar málverk og hugsanir um ferðina í kjölfarið

Sýning gríska listamannsins Lefteris Jakúmakis  „Íbúðarmálverk og hugsanir um ferðina í kjölfarið ” skiptist í tvo hluta. Fyrsti hlutinn „Íbúðarmálverk“ samanstendur af kyrralífsmálverkum sem voru máluð árin 2012 og 2013 í kjölfar yfirtöku Syntagma torgsins í Aþenu sumarið 2011 og fjölda mótmæla sem fylgdu um veturinn. Útgangspunkturinn er að hreyfingarnar í þessum mótmælum töpuðu baráttunni vegna þess að hugmyndafræðin hefur verið yfirtekin af hugsunarhætti miðstéttarinnar og gildum hennar. Listamaðurinn upphefur hluti sem eru táknrænir fyrir þennan miðstéttarhugsunarhátt og fagurfræði miðstéttarinnar yfir í viðfangsefni málverksins. Annar hluti sýningarinnar „ Hugsanir um ferðina í kjölfarið“, lýsir á myndrænan hátt upplifuninni af því að flytja til norðurhluta Íslands og hvernig það var að vinna í fiskvinnslu í smábæ árin eftir að „íbúðarmálverkin“  voru gerð. „Hugsanirnar“ eru teikningar í smáu sniði unnar með túss og kína bleki. Með annað augað á samfélags ástandinu heima fyrir er listamaðurinn samstundis heillaður af fegurð Íslands en hefur engu að síður uppi efasemdir og áhyggjur af birtingarmynd kapítalismans í íslensku samfélagi.

Lefteris Jakúmakis er fæddur í Aþenu, Grikklandi árið 1984. Hann nam myndlist við Aristotle Háskólann í Thessaloniki þar sem hann sérhæfði sig í málverki. Hann hefur sýnt verk sín í Grikklandi, Bandaríkjunum og á Íslandi. Árið 2010 var gestalistamaður í Herhúsinu á Siglufirði og hefur síðan þá reglulega heimsótt bæinn, búið þar og unnið að list sinni og fiskvinnslu.

Apartment painting and notes on journey after.

 “Apartment painting and notes on journey after” is an exhibition, by Greek artist Lefteris Yakoumakis, that consists of two parts. The first part, “Apartment painting”, is a group of still life  paintings that were created between 2012 and 2013 on the aftermath of the occupation of Syntagma square in Athens in the summer of 2011 and the large protests of the following winter. Starting from the assumption that those movements lost the battle because ideologies have died to be replaced by middle class mentality the artist seeks to elevate objects symbolic of middle class mentality and aesthetics to the level of painting subjects. The second part of the exhibition, “Notes on the journey after”, is an illustration of the experience of moving to northern Iceland and working in the fishing industry in the years that followed “apartment painting”. The “notes” are small format drawings drawn with markers and chinese ink. With one eye turned to the ongoing social struggle back home the artist is mesmerised by Iceland's beauty and at the same time skeptical for the manifestations of the capitalist machine in the country.

 

 

Lefteris Yakoumakis was born in Athens, Greece in 1984. He studied Art at the School of Fine Arts of the Aristotle University of Thessaloniki where he specialized in painting. He has exhibited his work in Greece, U.S.A and Iceland. He arrived in Siglufjörður in December 2010 as the guest artist of the Herhúsið artist-in-residence program, and since 2013 regularly revisits the town to live and work in its fishing industry. 


Athugasemdir

22.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst