Íslandsmótið í krakkablaki
Helgina 5.-6.apríl fór fram íslandsmótið í 4.flokki í krakkablaki. Mótið fór fram í Kórnum í Kópavogi og fóru tvö lið (eitt stráka og eitt stelpu) frá Glóa ásamt fríðu og fjölmennu föruneyti. Bæði liðin enduðu í 6.sæti sem verður að teljast frábær árangur þar þau byrjuðu öll að iðka blakíþróttina síðastliðið haust.
Á laugardagskvöldinu skelltu krakkarnir sér í bíó í boði Sparisjóðs Siglufjarðar og vilja krakkarnir og aðstandendur þakka
SPS kærlega fyrir sig, en fyrirtækið er gríðarlega duglegt að styrkja félagastarfsemi sem tengist börnum og unglingum í sveitarfélaginu.
Einnig vilja allir þakka Hyrnumönnum og Glóa fyrir sinn stuðning í ferðinni.
Í vetur hafa yfir 30 krakkar frá 1.-9.bekk stundað blak af miklum áhuga. Stefnan er svo að hafa strandblaksæfingar fyrir krakkana í sumar og byrja svo aftur
inni næsta haust.
Kv. Anna María og Óskar
Athugasemdir