Íþróttarmenn á ferðalagi

Íþróttarmenn á ferðalagi Íþróttarfólk frá Siglufirði er á faraldsfæti um helgina. TBS er með 11 krakka á Barna og unglingameistaramóti TBR í Reykjavík.

Fréttir

Íþróttarmenn á ferðalagi

 Patrekur og Torfi í höllinni í Laugardalnum á Stórmóti ÍR í fyrra.
Patrekur og Torfi í höllinni í Laugardalnum á Stórmóti ÍR í fyrra.
Íþróttarfólk frá Siglufirði er á faraldsfæti um helgina. TBS er með 11 krakka á Barna og unglingameistaramóti TBR í Reykjavík. Meistaraflokkur KS-Leifturs leikur sinn fyrsta leik í Soccerademótinu gegn Tindastól í Boganum á Akureyri kl. 16:15.
Níu frjálsíþróttaiðkendur frá Umf Glóa munu taka þátt í Stórmóti ÍR í frjálsum íþróttum um helgina, en það fer fram í frjálsíþróttahöllinni í Reykjavík.  Mótið er það fjölmennasta sem haldið er innanhúss ár hvert og eru keppendur að þessu sinni um 640.  Þetta er þriðja árið í röð sem Glói sendir keppendur á þetta mót og hefur gengi Siglfirðinganna verið mjög gott undanfarin ár.  Hefur okkar fólk verið í baráttu um verðlaun í keppni við efnilegasta frjálsíþróttafólk landins og komið heim með þau nokkur hvort ár.  Keppendur í ár eru frá 8 – 14 ára og keppa flestir í nokkrum greinum.  Hægt verður að fylgjast með gengi okkar fólks á heimasíðu Glóa http://www.123.is/umfgloi/

Athugasemdir

16.janúar 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst