Jákvæð afleiðing kreppunnar
Fátt er svo með öllu illt. Jafnvel kreppan getur leitt þó það gott af sér að vegna hennar er framkvæmdum við olíhreinsistöð í Arnarfirði frestað um óákveðinn tíma!
Óvissa sem hefur skapast vegna heimskreppunnar slær á fyrirætlanir rússneska stórfyrirtækisins sem hefur tekið að sér framkvæmdirnar. Vonadi verður sá "frestur" sem lengstur.
Það væru náttúruspjöll að koma olíhreisistöðinni fyrir í einum fallegasta firði á vestfjörðum.
Stanslausar ferðir flutningaskipa væru nauðsynlegur fylgifiskur stöðvarinnar. Fullkomlega óásættanleg mengunarslysahætta væri af stöðinni staðsettri inni í firði þar sem veðravíti úthafsins er skammt undan og flutningaskipin á ferð fullhlaðin á öllum árstímum.
Athugasemdir