Jóhannes Björn á Austurvelli.
Af fyrri reynslu þekkir maður það vel að norðan í fjöllum verður hvað hvassast í þessari stöðu. Fjallgarðar sem liggja þvert á vindstefnuna eiga stóran þátt í því að keyra niður vindorkuna. Þeir staðir þar maður veit að verulega hvasst og skeinuhætt verður eru þessir:
1. Norðanvert Snæfellsnes, frá Hellissandi og inn fyrir Stykkishólm á Skógarströndina. Seint í nótt og snemma í fyrramálið, (til svona sjö til níu) verður hvassast og vindhviður geta hæglega farið í 40-50 m/s.
2. Skagafjörðurinn vestanverður, frá Mælifelli og út fyrir Sauðárkrók getur orðið æði hvasst við þessi skilyrði frá því um kl. sex í fyrramáli og fram undir hádegi.
3. Mjög skiptivindasamt í Fljótum og á Siglufjarðarvegi, sérstakalega við Sauðanes, þar sem hnútarnir geta orðið allsvakalegir í þeirri mildu S-átt sem spáð er fyrri partinn á morgun.
4. Um austanvert landið eru það Vopnafjörður og Fáskrúðsfjörður innanverður sem helst eru í kastljósi vinda ofan af fjöllum og bora sig niður til yfirborðs. Einna hvassast þar um miðjan daginn á morgun, í þann mund sem skil lægðarinnar ganga austur af landinu.
Þetta er eins og gefur að skilja ekki endanleg upptalning.
Reykjavík er líka nokkuð "opin" fyrir SSA-átt og kæmi mér alls ekki á óvart að meiri vindur mældist þar seint í nótt, heldur var hér fyrir helgi í A-storminum.
Athugasemdir