Jólafundur eldriborgara
sksiglo.is | Norðlenskar fréttir | 20.12.2010 | 02:37 | Finnur Yngvi Kristinsson | Lestrar 755 | Athugasemdir ( )
Árlegur jólafundur eldriborgara var haldinn í gær þar sem margt var um manninn.
Að vanda sá Kobbi um veitingarnar en veisluborðið var hlaðið kökum og allt hið glæsilegasta enda greinilegt að gestir nutu vel.
Karlakórinn kíkti við og söng fyrir gesti með miklum fögnuði eins og þeim einum er lagið. Örlygur kom síðan og las uppúr bók sinni „svipmyndir úr síldarbæ“ og að sjálfsögðu tók kór eldriborgara, Vorboðarnir, síðan lagið.
Óhætt er því að segja að kátt hafi verið í höllinni á jólafundi eldriborgara um helgina.
Fleiri glæsilegar myndir frá Steinu má sjá hér

Athugasemdir