Jólin komin á Hannes Boy
Mikið hefur verið hringt á Hannes Boy að spyrjast fyrir um fyrirhugaða opnun veitingarstaðarins sem opnar dyr sínar fyrir spenntum matargestum í kvöld með sérstöku jólaþema á matseðli og tónleikum með Gító og Rodrigo.
Undanfarnar vikur hafa starfsmenn Rauðku unnið að því að skreyta Rauðkutorg samhliða þeim miklu framkvæmdum sem standa yfir á Rauða húsinu. Hannes Boy hefur nú verið skreyttur að innan sem utan og jólaandinn færst yfir staðinn.
Skipulagðar hafa verið uppákomur alla fimmtudaga þar sem fólk getur sest að snæðingi og hlustað síðan á tónleika og hefst það í kvöld með glæsilegum tónleikum Gító og Rodrigo þar sem þeir kynna gestum fyrir Brasilískum tónum ásamt því að spila nokkur jólalög.
Hannes Boy verður opinn fram að jólum alla föstudaga-sunndaga frá klukkan 12:00-22:00 og á fimmtudögum frá klukkan 18:00-23:00.
Athugasemdir