Jónsmessumótiđ í strandblaki
Mánudaginn 16.júní fer fram Jónsmessumót í strandblaki á Siglufirði.
Stefnt er að því að byrja mótið kl 21:00 en ef þáttaka er mikil þá munum við eftirvill byrja eitthvað fyrr. 2 og 2 munu spila saman í liði og verður dregið í lið fyrir mótið.
Hvert lið mun fá a.m.k. 4 leiki. Stefnt er að því að hafa einn karlariðill en fjöldi kvennariðla ræðst af þátttökunni. Keppnisfyrirkomulag mun ráðast af þátttökunni en það verður annað hvort spiluð ein hrina upp í 21 eða tímamörk á hvern leik (t.d. 10 mínútur).
Keppnisgjald er 1.500.- pr keppanda sem greiðist á mótsstað.
Keppendur geta skráð sig með því að senda mail á oskar@mtr.is fyrir kl 15:00 á mánudag. Hægt er að fá nánari upplýsingar hjá Önnu Maríu í síma 699-8817.
Nú er um að gera að skella sér í smá strandblak í blíðunni á Sigló og njóta miðnætursólarinnar í góðra vina hóp.
Athugasemdir