Konur fyrir konur
sksiglo.is | Norðlenskar fréttir | 21.10.2010 | 15:42 | Bergþór Morthens | Lestrar 510 | Athugasemdir ( )
Í kvöld kl. 20.30 verða haldnir kammertónleikar í
Hofi. Fram koma norðlenskar listakonur, sem flytja tónlist og ljóð
eftir konur.
Allur aðgangseyrir tónleikanna rennur óskiptur til Krabbameinsfélags Íslands, Bleiku slaufunnar.
Siglfirðingar eiga einn fulltrúa á þessum tónleikum en Guðrún Ingimundardóttir (Rúna í tónskólanum) er annar höfundur verksins.

Að tónleikunum stendur Trio Colore, sem skipað er Ásdísi Arnardóttur selló, Láru Sóleyju Jóhannsdóttur, fiðlu og Petreu Óskardóttur, þverflautu. Tríóið munu frumflytja tvö íslensk verk sem samin hafa verið sérstaklega að þessu tilefni. Höfundar verkanna eru Hildigunnur Rúnarsdóttir og Guðrún Ingimundardóttir.
Auk Trio Colore koma fram Eyrún Unnarsdóttir, mezzosópran og Helga Bryndís Magnúsdóttir, píanóleikari.
Um kynningar og ljóðalestur sér leikkonan Bryndís Ásmundsdóttir.
Miðaverð er kr. 2500
Athugasemdir