Krílamót BYKO í blíðunni
Föstudaginn 31.júlí fór fram krílamót BYKO í blíðskapar veðri á strandblaksvellinum við Rauðku á Siglufirði.
Sjö pör mættu til leiks á aldrinum 10-15 ára og skemmtu sér konunglega í sandinum. Margir hörkuleikir voru spilaðir og sáust fjölmörg glæsileg tilþrif hjá ungviðnum okkar.
Í lok móts fengu allir keppendur sundpoka og buff frá BYKO og ís frá Kjörís ásamt því að öll pörin fengu verðlaun.
Mótshaldarar vilja þakka eftirtöldum fyrirtækjum fyrir stuðninginn: BYKO, Kjörís, Höllin Ólafsfirði, NIVEA, Siglósport og Íþróttamiðstöð fjallabyggðar.
Athugasemdir