Landsmót kvæðamanna
Þótt miður vetur sé miðað við veðurlagið þessa dagana þá er alltaf eitthvað að gerast á Siglufirði. Fyrir tíu dögum spilaði Nýdönsk fyrir fullu húsi í Rauðku og svo náði Franska kvikmyndahátíðin á Norðurlandi hingað með frábærum bíómyndum í Bláahúsinu.
Og senn líður nú að Landsmóti kvæðamanna sem á sérstakt „heimili“ á Sigló. Landsmótið á sér upphaf í móti kvæðamanna hér fyrir tveimur árum og mun þessi þriðja hátíð verða stærra í sniðum en þær fyrri.
Það fer fram dagana 28. – 30 mars með fjölbreytilegri dagskrá. Boðið verður upp á námskeið í kveðskaparlist, tvísöng og bragfræði.
Tónleikar verða með Steindóri Andersen og Hilmari Erni Hilmarssyni í Bátahúsinu.Og haldin verður opin kvöldskemmtun í Rauðku með málsverði og skemmtiatriðum.
Öll atriði dagskrár verða opin bæjarbúum og ferðamönnum. Sjá nánar dagskrá á www.thjodlist.is eða www.rimur.is
ÖK.
Athugasemdir