Listakonan Alla Sigga
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 08.03.2010 | 07:00 | | Lestrar 1136 | Athugasemdir ( )
Eins og áður hefur verið sagt frá dvelur listakonan Aðalheiður S. Eysteinsdóttir í Herhúsinu þessa dagana og síðastliðinn sunnudag var hún með opið hús. Fjölmargir heimsóttu listakonuna og sáu verk hennar en einnig gátu gestir spreytt sig á að búa til sín eigin listaverk því nægur var efniviðurinn og verkfærin til þess. Ótrúlegt er að sjá hve tréverk hennar eru raunveruleg og því líkast að þau séu lifandi.
Á vefsíðunni www.freyjulundur.is má finna upplýsingar um verk og feril Öllu Siggu og hennar fjölskyldu.
Athugasemdir