Ljóđahátíđin Glóđ

Ljóđahátíđin Glóđ Ljóđahátíđin Glóđ fer fram á Siglufirđi dagana 17.-19. september og er ţetta ţriđja áriđ í röđ sem hátíđin er haldin.  Ţađ eru Umf. Glói

Fréttir

Ljóđahátíđin Glóđ

Ljóđahátíđin Glóđ fer fram á Siglufirđi dagana 17.-19. september og er ţetta ţriđja áriđ í röđ sem hátíđin er haldin.  Ţađ eru Umf. Glói og Félag um Ljóđasetur Íslands sem standa ađ hátíđinni.  Sérstakir gestir hátíđarinnar í ár verđa ljóđskáldin Kristján Kristjánsson og Ingi Steinar Gunnlaugsson sem báđir eru barnfćddir Siglfirđingar.  Ţeir hafa m.a. samiđ töluvert af ljóđum um ćskuár sín á Siglufirđi og munu m.a. flytja ţau á hátíđinni.  Einnig mun leikarinn Elfar Logi Hannesson koma fram á hátíđinni ađ ógleymdum heimamönnum sem munu ekki láta sitt eftir liggja.  Nemendur grunnskólans munu einnig koma mikiđ viđ sögu eins og sjá má í dagskránni og má ţá sérstaklega benda á hina Ljóđrćnu myndlistarsýningu sem verđur í Ráđhússalnum.

Sem fyrr er frítt inn á alla viđburđi hátíđarinnar, sem er styrkt af Fjallabyggđ, Menningarsjóđi Sparisjóđs Siglufjarđar og Menningarráđi Eyţings, og eru íbúar Fjallabyggđar og nágrennis hvattir til ađ fjölmenna og njóta ţess sem í bođi er.

Dagskáin er sem sjá má hér ađ neđan.

Fimmtudag 17.9. Ljóđadagskrá á vinnustöđum bćjarins kl. 14.00 – 16.00
Nemendur Grunnskóla Siglufjarđar flytja eigin ljóđ og annarra fyrir bćjarbúa og gesti.

Ljóđakaffi á léttum nótum í Ţjóđlagasetri kl. 20.00
Gamanvísur fluttar af ýmsum snillingum og ljúfur kaffisopi međ.

Föstudag 18.9. Ljóđalestur í Grunnskóla Siglufjarđar
Ljóđskáldin Kristján Kristjánsson og Ingi Steinar Gunnlaugsson lesa úr verkum sínum fyrir nemendur.

Ljóđalestur á Skálarhlíđ kl. 15.15
Kristján Kristjánsson og Ingi Steinar Gunnlaugsson flytja eigin ljóđ.

Ljóđrćn myndlistarsýning í Ráđhússalnum opnuđ kl.17.00
Opnun myndlistarsýningar verka úr Listasafni Fjallabyggđar og sýnd ljóđ
sem nemendur úr Grunnskóla Siglufjarđar hafa samiđ út frá verkunum.

Sýning í Ráđhússal kl. 17.00
Sýning á munum og bókum frá Félagi um Ljóđasetur.

Ljóđakvöld í Gránu kl. 20.00
Ljóđskáldin Kristján Kristjánsson og Ingi Steinar Gunnlaugsson koma fram.

Laugardag 19.9. Ráđhússalur kl. 15.00
Úrslit úr ljóđasamkeppni grunnskólanema kunngjörđ og sýning opin.

Ćskuminningar úr Ţorpinu – Ljóđadagskrá í Gránu kl. 20.00 
Kristján Kristjánsson og Ingi Steinar Gunnlaugsson flytja ljóđ um ćskuminningar sínar frá Siglufirđi, Páll Helgason flytur ljóđ af fólkinu á Brekkunni, Elfar Logi og Ţórarinn Hannessynir flytja ljóđaleik sinn Ţorpiđ í tali, leik og tónum. Leikurinn inniheldur ljóđ úr samnefndu verki Jóns úr Vör.     

Ljóđabókamarkađur á ljóđakvöldum í Gránu – fjöldi titla.

Frítt er inn á alla viđburđi hátíđarinnar

Athugasemdir

21.apríl 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörđur
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgiđ okkur á Facebook eđa Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst