Mánudagspirringurinn

Mánudagspirringurinn Ég beið fyrir utan verslanir í Smáralind eftir konu minni í dágóðan tíma um helgina. Á röltinu ákvað ég að skoða nöfn verslana á

Fréttir

Mánudagspirringurinn

Björn Valur Gíslason
Björn Valur Gíslason
Ég beið fyrir utan verslanir í Smáralind eftir konu minni í dágóðan tíma um helgina. Á röltinu ákvað ég að skoða nöfn verslana á annarri hæðinni, svona til að gera eitthvað. Ég fann aðeins tvær eða þrjár verslanir með íslenskum nöfnum, aðrar hétu erlendum nöfnum frá ýmsum heimshornum. Hvernig ætli standi á því að íslenskir verslunareigendur láti fyrirtæki sín bera erlend nöfn í stað íslenskra?Ég lét þetta pirra mig smávegis í bland við annan pirring á meðan ég beið eftir því sem verða vildi þarna í Smáralind um helgina. En svo tók pirringurinn sig upp aftur í dag þegar ég las um að opnuð hefði verið verslun á Bakkfirði, verslunin Mónakó– MÓNAKÓ!!!! Sök sér að skjóta niður tuskubúð í Smáralind sem héti Mónakó en á Bakkfirði, því séríslenska samfélagi, þar gengur það bara ekki upp. Hverskonar hugmyndadauði er það að finna ekkert annað nafn á einu verslun Bakkafjarðar en MÓNAKÓ? Er ekkert í umhverfi Bakkafjarðar, kennileiti, staðarheiti í sögu staðarins eða annað slíkt sem kom til greina? Ég er verulega pirraður út af þessu.
Myndin hér að ofan er frá Mónakó, þó ekki þeirri á Bakkafirði.

Athugasemdir

10.janúar 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst