Mark Duffield veitt Silfurmerki KÞÍ

Mark Duffield veitt Silfurmerki KÞÍ Mark Duffield knattspyrnuþjálfari var nýverið sæmdur Silfurmerki Knattspyrnu-þjálfarafélags Íslands.Mark tók við

Fréttir

Mark Duffield veitt Silfurmerki KÞÍ

Þrír góðir : Páll V. Gíslason þjálfari mfl. karla Þórs, Mark Duffield og Þorlákur Árnason, þjálfari mfl. Stjörnunnar kvk.
Þrír góðir : Páll V. Gíslason þjálfari mfl. karla Þórs, Mark Duffield og Þorlákur Árnason, þjálfari mfl. Stjörnunnar kvk.
Mark Duffield knattspyrnuþjálfari var nýverið sæmdur Silfurmerki Knattspyrnu-þjálfarafélags Íslands.

Mark tók við merkinu á 40 ára afmælishátíð Knattspyrnuþjálfarafélags Íslands.

Merkið er mikil og góð viðurkenning fyrir áralöng störf Marks sem yngri flokka þjálfari hjá KS.

Mark náði góðum árangri með liði sínu í sumar og munaði hársbreidd að þeir færu alla leið í baráttunni um Íslandsmeistaratitil.

Þetta er mikil og góð viðurkenning á störfum Marks, því að á meðal silfurverðlaunahafa voru úrvalsdeildarþjálfarar og landsliðsþjálfarar m.a. Ólafur H. Kristjánsson, þjálfari Íslandsmeistara Breiðabliks og Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari kvenna.

Góð tíðindi og á Mark þessa viðurkenningu svo sannarlega skilið.

 


Athugasemdir

27.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst