Matgæðingur vikunnar
Matgæðingar vikunnar eru hjónin Biddý og Jói (Brynhildur Baldursdóttir & Jóhann Ottesen)
Við ætlum að skora á Ægir og Höddu sem næstu matgæðinga.
Steinseljufiskur
Ca 1 kg ýsa eða 3-4 flök
60 gr brætt smjör
1dl brauðrasp frá Kobba
¼ tsk pipar
500 gr rifinn ostur
Hálfur púrrulaukur smátt saxaður
½ bolli steinselja
Fiskurinn settur í eldfast form,pressað úr einni sítrónu yfir og saltað. Smjör brætt í potti og rasp,rifinn ostur,púrrulaukur og steinselja sett út í og hrært vel saman,smurt yfir fiskinn og bakað í ca.20 mínútur
Verði ykkur að góðu
Athugasemdir