Matgæðingur vikunnar
Matgæðingar vikunnar eru hjónin Ásdís og Örnólfur (Ásdís Magnúsdóttir & Örnólfur Ásmundsson)
Þar sem fiskur er í miklu uppáhaldi hjá okkur (a.m.k öðru okkar) varð þessi fiskréttur fyrir valinu.
Við sendum boltann til baka í norðurbæinn til hjónanna Laugu og Elmars.
Með bestu kveðju,
Ásdís og Örnólfur.
Pönnufiskur
½ blaðlaukur
1 laukur
1 ½ msk matarolía
200 gr. sveppir
1 dl. vatn
1 dl. matreiðslurjómi (eða rjómi)
100 g rjómaostur
1 ½ tsk. nautakjötskraftur
1 tsk. salt
1 tsk. karrí
½ tsk pipar
½ tsk. paprikuduft
800 g fiskflök (ýsa eða þoskur).
Hreinsið blaðlaukinn og skerið hann í þunnar sneiðar. Saxið laukinn. Mýkið hvoru tveggja á pönnu í olíu.
Hreinsið sveppina og skerið þá í sneiðar, bætið þeim á pönnuna og látið þá krauma aðeins með
lauknum.
Hellið vatninu og rjómanum á pönnuna og leysið rjómaostinn upp í vökvanum.
Bætið nautakjötskraftinum út í og hrærið öllu vel saman.
Blandið saltinu, karríinu, piparnum og paprikuduftinu saman í skál.
Hreinsið fiskinn, skerið hann í sneiðar, setjið fiskstykkin á pönnuna ofan í sósuna og dreifið kryddblöndunni yfir.
Setjið lok á pönnuna og látið suðuna koma upp, slökkvið þá undir og leyfið pönnunni að standa á heitri hellunni stutta
stund.
Berið fram á pönnunni ásamt soðnum hrísgrjónum og grænmetissalati.
Athugasemdir