Músin er fertug
visir.is, 09. des. 2008
| Greinar | 09.12.2008 | 14:32 | | Lestrar 417 | Athugasemdir ( )
Tölvumúsin er fertug í dag. Þann níunda desember árið 1968 kynnti uppfinningarmaðurinn Douglas Engelbart nýtt tæki sem átti eftir
að gjörbreyta því hvernig fólk notar tölvur.
Músin sem Engelbart sýndi á Fall Joint tölvuráðstefnunni var úr tré og hafði einn hnapp. Hún átti þó eftir að verða grunnurinn að þeim vél og hugbúnaði sem milljónir manna um heim allan nota á degi hverjum. Hátíðarhöld í tilefni afmælisins verða í Kaliforníu í dag, og verða margir þeirra sem unnu að fyrstu músinni viðstaddir þau.
Kynningu Engelbarts á músinni má sjá HÉR
Athugasemdir