Myndakvöld Siglfirðingafélagsins 23. mars í Kornhlöðunni (Lækjarbrekka)
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 15.03.2010 | 07:00 | | Lestrar 395 | Athugasemdir ( )
Siglfirðingafélagið heldur sitt annað myndakvöld í Kornhlöðunni (Lækjarbrekka)
þriðjudaginn 23. mars næstkomandi kl. 20:00. Ljósmyndasafn Siglufjarðar geymir mikið magn af myndum, bæði mannamyndum og myndum frá Siglufirði. Verið er að vinna að skráningu mynda fyrir safnið og vill Siglfirðingafélagið taka þátt í því og viðhalda menningarverðmætum.
Félagið ákvað því að efna til myndakvölds í annað sinn, núna í Kornhlöðunni. Félagið hvetur Siglfirðinga til að endurtaka leikinn frá í haust og mæta með Siglfirska vini sína með sér.
Hér er dæmi um mynd sem eftir er að merkja.

Athugasemdir