Niðamyrkur og rafmagnið farið

Niðamyrkur og rafmagnið farið Rafmagnið rofnaði á Siglufirði og að er virðist bróðurparti norðurlands rétt í þessu eða um klukkan 22:45 enda hvassviðri

Fréttir

Niðamyrkur og rafmagnið farið

Lítiđ að sjá
Lítiđ að sjá

Rafmagnið rofnaði á Siglufirði og að er virðist bróðurparti norðurlands rétt í þessu eða um klukkan 22:45 enda hvassviðri orðið mikið. Eins og sést á myndinni er lítið að sjá en verið er að huga að smábátum í höfninni.

Íbúar voru greinilega margir hverjir viðbúnnir þessu og mátti víða sjá tíru vasaljósa í gluggum. Einu ljósin sem nú sjást eru neyðarljós opinberra bygginga og hótels eða gistiheimila ásamt bátanna sem dansa um í smábátahöfninni.

Ekki er vitað hvenær rafmagn kemur aftur á en veður er með verra móti á svæðinu núna.


Athugasemdir

25.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst