Ninni hćttir sem vörubílstjóri
Sigurjón Steinsson hefur selt kranabíl sinn af Scania gerð sem hann hefur átt síðan 1983.
Þrjátíu og eins árs samfylgd þeirra lauk 29. ágúst sl þegar nýr eigandi vestan frá Ísafirði sótti vörubílinn. Ninni er frá bænum Hring í Fljótum og kom akandi yfir Siglufjarðarskarð vorið 1961 strax og snjómokstri lauk og vegurinn varð fær. Síðan hefur hann búið á Siglufirði með eiginkonu sinni Svölu Bjarnadóttur, eiga þau tvo syni.
Þegar Ninni hóf störf á bílastöðinn við Torgið ´61 voru 28 vörubílar á stöðinni. Fjórtán árum
fyrr, í Hvalfjarðarsíldinni 1947, voru yfir fjörtíu vörubílar í akstri á Siglufirði. Nú eftir að Scanía Ninna fluttist
vestur er aðeins einn vörubílsstjóri eftir sjálfstætt starfandi í bænum, Árni Haraldsson.
Ninni hefur um árabil sett svip á bæjarlífið sem harmonikuleikari með Ómari Haukssyni bassaleikara og hljómsveitinni Heldri mönnum.
Þá hefur Ninni verið í tvö sumur verið aðalspilarinn á síldarbryggju Síldarminjasafnsins og spilað þar fyrir þúsundir ferðamanna.
- ök
Athugasemdir