Nýtt líf í Slippnum
sksiglo.is | Norðlenskar fréttir | 22.07.2009 | 09:17 | Síldarminjasafnið | Lestrar 543 | Athugasemdir ( )
Síðari hluti samvinnuverkefnis Síldarminjasafnsins og Bátaverndarmiðstöðvar
Norður Noregs í Gratangen stendur nú yfir í gamla Slippnum á
Siglufirði. Smíðaður er lítill árabátur og mun þetta vera fyrsta slíka nýsmíðin í amk. 50 ár í Slippnum. Síðast var þar smíðuð 11 tonna trilla fyrir um 35 árum.
Verkefnið byrjaði 6. júlí sl. Björn Lillevoll bátasmiður og Skúli Thoroddsen trésmiður safnsins hófust þá handa að smíða bát með eyfirska laginu. Farið er í öllum aðalatriðum eftir “Bát Soffíu á Nesi” sem smíðaður var í Slippnum á Siglufirði 1934. Þessi leið er talin heppileg til að endurheimta skipulega forna þekkingu í hefðbundinni bátasmíði.
Tveir menn að auki, Björn Jónsson og Sveinn Þorsteinsson, gamalreyndir úr Slippnum, koma einnig að smíði bátsins. Fyrri hluti þessa samvinnuverkefnis fór fram í Gratangen síðsumars 2008 þegar Björn Jónsson og Örlygur Kristfinnsson safnstjóri dvöldu í Gratangen um nokkurra vikna skeið við smíði norsks árabáts undir verkstjórn Björns Lillevoll.
Verkefnið er kostnaðarsamt og fær styrki frá menntamálaráðuneytinu, Þjóðhátíðarsjóði Seðlabankans, og frá tveimur norrænum menningarsjóðum: Letterstedska Föreningen og Stiftelsen Clara Lachmanns Fond.
Verkefnisstjórn er í höndum Örlygs safnstjóra og Sigurbjargar Árnadóttur á Akureyri.
Meðfylgjandi ljósmynd var tekin 20. júlí af Skúla Thoroddsen og Birni Lillevoll þar sem þeir standa við nýsmíðina: Öðru umfari byrðings að ljúka.

Athugasemdir