Okkar maður – okkar fólk!
Æfingar hafa staðið yfir að undanförnu hjá hljómsveitinni Tý og sönghópnum „Sex um borð“ - fyrir tónleika til
heiðurs Gylfa Ægissyni sem verða haldnir í Bátahúsinu á laugardaginn kemur. Okkar fólk ber uppi söng og hljóðfæraslátt og
er það enginn annar en Stúlli, stundum kallaður „Ingimar Eydal“ Siglufjarðar, sem er listrænn stórnandi tónleikanna. Sjálfur
heiðursgesturinn, hinn mikilvirki laga- og textasmiður, Gylfi Ægis, mun verða sögumaður, segja frá ýmsu í tengslum við músíkina og
hvernig hún varð til – og taka aðeins lagið.
Nafn sönghópsins hefur vakið athygli en það skal tekið fram að þarna er ekkert um annað að ræða en söngvararnir eru sex að tölu
um borð í Tý. Það eru þau Bjössi Sveins, Finni Hauks, Mundý Bjarna, Danni Pétur, Steini Sveins og Tóti.
Hljómsveitina skipa auk Stúlla, Maggi Ólafs á gítar og Dúi Ben sem leikur á trommur og raddbönd í stöku lagi.
Nú svo má geta þess að vel fer á því að stuttmynd um Gústa guðsmann verður frumsýnd í byrjun tónleikanna
því það var einmitt Gylfi Ægis sem gerði þá gömlu kempu landsfræga með samnefndu lagi. Myndin er rúmar sex mínútur
að lengd, unnin af Dúa Landmark kvikmyndagerðarmanni í samvinnu við Síldarminjasafnið og nokkra aðila.
Athugasemdir