Óli Biddýjar skellir sér í sund.
sksiglo.is | Afþreying | 19.06.2013 | 06:00 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 789 | Athugasemdir ( )
Ég hitti á hann Óla Biddýjar þar sem hann var á leiðinni
í sund sem er svona varla eitthvað til þess að vera að ræða um, nema í góðra vina hópi og þá einungis til þess að
hlæja og hafa gaman.
En ég allavega hitti á karlinn þar sem hann var að rogast niður tröppur
með grillið sitt. Ég fór að spyra hann að því hvað hann vær að braza og hann sagði mér að hann væri að fara í
sund. Ég var svona frekar hissa á þessu með grillið og spurði hann hvort hann væri að fara að lána grillið en svo var nú aldeilis ekki.
Hann Óli keypti sér nefnilega grill fyrir stuttu síðan og í dag fer hann ekki út úr húsi nema að hafa grillið sitt með (ef honum
skildi nú detta það allt í einu í hug að grilla smávegis).
Það er víst erfitt að finna öflugri grillara en Óla og hann grillar
víst allt á milli himins og jarðar og það sést víst nokkuð oft til hans í gönugtúr með grillið.
Óli með grillið.
Landcruserinn er búið að endurhanna til þess sérstaklega að flytja
grillið.
Sóley Anna fylgist af aðdáun með því hvernig hann Óli leggur
grillið varlega í sérhannað
skottið.
Aðdáun Sóleyar Önnu leynir sér ekki.
Athugasemdir