Opið hús hjá Fjallabyggðarlistanum
sksiglo.is | Almennt | 08.05.2014 | 16:03 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 390 | Athugasemdir ( )
Föstudaginn 9. maí verður opið hús hjá Fjallabyggðarlistanum í Höllinni á Ólafsfirði.
Þar munu frambjóðendur, stuðningsmenn og velunnarar hittast og ræða málin. Húsið opnar kl. 19:30. Við viljum bjóða íbúum að koma að kynnast okkar fólki og málefnum.
Léttar veitingar að hætti hússins, pizzur o.fl.
Hvetjum alla til að mæta og kynna sér stefnumálin okkar og hafa áhrif.
Allir velkomnir
Fjallabyggðarlistinn – „Fyrir fólkið í Fjallabyggð“
www.xf.is
Athugasemdir