Paramót í strandblaki
Innsent efni.
Fimmtudaginn 03.júlí fer fram Paramót í strandblaki á strandblaksvellinum við
Rauðku á Siglufirði. Mótið er öllum opið en grunnreglurnar eru eftirfarandi:
Pör þurfa að skrá sig til leiks (karl og kona eða kona og kona)
Hver leikur er ein (1) hrina upp í 21 (vinna með einu)
Mótafyrirkomulag ræðst af fjölda para sem skrá sig
Kostnaður pr par er 2.000.- og greiðist það á
mótsstað en áður en mótið hefst. Pör eru vinsamlegast beðin um að senda skráningu á mótsstjóra (oskar@mtr.is eða 699-8817) og æskilegt er að það komi fram hvenær viðkomandi par getur hafið
leik (klukkan hvað) ásamt GSM númeri hjá öðrum aðilanum (þannig að við getum sent viðkomandi hvenær mótið hefst og
hvenær áætlað er að fyrsti leikur parsins sé). Skráningu á mótið lýkur kl 12:00 fimmtudaginn
03.júlí.
Hlökkum til að sjá alla í blíðunni á Sigló
Athugasemdir