Paramót Rauðku í blaki
Föstudaginn langa fer fram Paramót Rauðku í blaki í íþróttahúsinu á Siglufirði. Mótið er haldið til styrktar Strandblakvellinum á Siglufirði.
Mótið er öllum opið en grunnreglurnar eru eftirfarandi:
Pör þurfa að skrá sig til leiks (karl og kona eða kona og kona) Dregið verður í lið fyrir hverja hrinu (þrjú pör mynda lið) Hver
hrina er spiluð upp í 15 og nóg er að vinna með einu stigi Spilaðar verða a.m.k. 8 hrinur en fjöldi hrina fer eftir fjölda para. Verðlaun verða
veitt efsta parinu og svo verða ýmsir happdrættisvinningar dregnir út á meðan á mótinu stendur.
Mótið hefst um 16:30 en hægt er að mæta í upphitun um 16:00 og því lýkur fyrir kvöldmat. Kostnaður pr par er 4000.- og greiðist það á mótsstað en áður en mótið hefst. Pör eru vinsamlegast beðin um að senda skráningu á mótsstjóra (oskar@mtr.is eða 848-6726) sem fyrst þar sem einungis 36 pör geta tekið þátt á mótinu.
Nú er um að gera að taka frá nokkrar klukkustundir föstudaginn langa og mæta með góða skapið í íþróttahúsið og njóta góðrar samverustundar og um leið styrkja gott málefni.
Athugasemdir