Ragnar Jónasson kynnir bók sína í Ljóđasetrinu í dag kl: 13:30

Ragnar Jónasson kynnir bók sína í Ljóđasetrinu í dag kl: 13:30 Nýjasta bókin í Siglufjarđarsyrpu Ragnars Jónassonar, Andköf, kom út síđastliđinn mánudag.

Fréttir

Ragnar Jónasson kynnir bók sína í Ljóđasetrinu í dag kl: 13:30

Ragnar Jónasson kynnir bók sína í Ljóðasetrinu í dag kl: 13:30

 
Nýjasta bókin í Siglufjarðarsyrpu Ragnars Jónassonar, Andköf, kom út síðastliðinn mánudag. 

Sögusviðið er áfram Norðurland en að þessu sinni er Ari Þór Arason, lögreglumaður á Siglufirði, beðinn um að aðstoða við rannsókn máls í Kálfshamarsvík, rétt norðan við Skagaströnd. Þar finnst lík ungrar konu undir hrikalegum klettum skömmu fyrir jól. Í ljós kemur að móðir hennar og barnung systir hlutu sömu örlög á sama stað aldarfjórðungi áður. Á Kálfshamarsnesi stóð áður þorp, í upphafi síðustu aldar, en byggðin lagðist af fyrir 1940. 

Ragnar hyggst kynna bókina í Ljóðasetrinu á Siglufirði á laugardaginn kl. 13:30, segja sögu þorpsins sem hvarf og lesa upp úr bókinni. 

Að því loknu, kl. 14:00, verður hægt að fá bókina áritaða á sérstöku tilboðsverði í Samkaup úrval. 


Þess má geta að Myrknætti, önnur bók Ragnars í syrpunni, kom nú á dögunum út í Þýskalandi og kallast þar Todesnacht.


Athugasemdir

31.janúar 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörđur
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgiđ okkur á Facebook eđa Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst