Ragnar og Agnar skrifa undir hjá KS/Leiftri.
sksiglo.is | Norðlenskar fréttir | 25.10.2010 | 00:01 | Bergþór Morthens | Lestrar 657 | Athugasemdir ( )
Ragnar Haukur Hauksson skrifaði undir tveggja ára samning við KS/Leiftur. Ragnar verður einnig spilandi aðstoðarþjálfari liðsins.
Agnar Þór Sveinsson fyrirliði liðsins til margra ára skrifaði einnig undir tveggja ára samning við félagið.
KS/Leiftur hefur gengið frá samningum við flesta þá leikmenn sem spiluðu á síðasta keppnistímabili. Samið verður við þá sem eftir eru á næstu dögum.
Hópurinn fyrir næsta keppnistímabil fer því að verða fullmannaður. Æfingar eru þegar hafnar undir stjórn Lárusar Orra Sigurðssonar.
KS/Leiftur munu sameinast í næsta mánuði í eitt félag. Nafnið á félaginu er ekki klárt, en margar góðar hugmyndir hafa komið fram.

Athugasemdir