Rauðka steypir gólfið í Hannes Boy Café
Rauðka hefur nú lokið við þau útiverk sem klára þurfti fyrir veturinn. Hellulagt hefur verið milli húsanna á Rauðkutorgi og lokið hefur verið að klæða Danna (nyrðra húsið) að utan ásamt því að sköpuð hefur verið jólastemmning á svæðinu. Fyrirtækið hefur nú snúið sér að því að gera húsin tilbúin að innan.
Á fimmtudaginn réðust starfsmenn Rauðku í að steypa gólfið í Hannes Boy Café með dyggri aðstoð Njarðar, Bás og Berg. Að sögn Rauðkumanna verður nú í beinu framhaldi hafist handa við að gera innviði veitingastaðarins tilbúið, en stefnt er að því að Hannes Boy Café opni dyr sínar næstkomandi vor. Samhliða mun fyrirtækið vinna að standsetningu Danna (bláa hússins) að innan, en stefnt er á að þar hefjist einnig rekstur næsta sumar.
Athugasemdir