Rekstur Fjallabyggðar skilaði 150 milljóna króna hagnaði
sksiglo.is | Almennt | 06.03.2014 | 19:11 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 316 | Athugasemdir ( )
Sveitarfélagið Fjallabyggð skilaði 150,1 milljóna króna hagnaði á síðasta ári en fyrri umræða um
ársreikninga fór fram í bæjarstjórn í gær. Samþykkt var með öllum greiddum atkvæðum að vísa ársreikningum til
síðari umræðu. Hagnaður sveitarfélagsins var talsvert umfram áætlanir á síðasta ári og jafnframt voru skuldir greiddar meira
niður en fjárhagsáætlun ársins gerði ráð fyrir.
Með
ársreikningunum er í senn staðfest sterk fjárhagsstaða Fjallabyggðar og traustur rekstur en hagræðingaraðgerðum sem ráðist hefur
verið í á síðustu misserum má að hluta þakka sú jákvæða afkoma á árinu 2013 sem raun ber vitni.
Hraðari lækkun
skulda
Eins og fram kemur í
meðfylgjandi lykiltölum voru rekstrartekjur Fjallabyggðar rösklega 1.860 m. kr. og nemur hagnaður ársins því 8,1% af tekjum. Afkoman var um 126 m.kr. betri
en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun ársins. Jákvæð áhrif í rekstri sveitarfélagsins birtast ennfremur í
lækkun skulda en í heild greiddi bæjarsjóður niður skuldir um 161 m. kr. á árinu eða 65 m.kr. umfram það sem gert var ráð
fyrir í fjárhagsáætlun.
Skuldahlutfall samstæðu
sveitarsjóðs, þ.e. A og B-hluta, er 77,1% en viðmiðunarmörk eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga eru 150%. Fjallabyggð er
því í hópi þeirra sveitarfélaga sem best standa hvað skuldir varðar.
Skapar forsendur til
framkvæmda
Sterkari staða
Fjallabyggðar hefur skapað bæjarstjórn tækifæri til framkvæmda og annarra aðgerða í þágu íbúa sveitarfélagsins.
Á árinu 2013 réðist Fjallabyggð í framkvæmdir fyrir 104 milljónir króna en fjárhagsáætlun ársins 2014 og
þriggja ára áætlun gera ráð fyrir framkvæmdum fyrir um einn milljarð króna á fjögurra ára tímabili. Stærsti
einstaki framkvæmdaliðurinn er viðbygging grunnskólans á Siglufirði en á yfirstandandi ári verður varið 175 milljónum króna til
hennar. Langtímaáætlanir um framkvæmdir sveitarfélagsins gera ráð fyrir að í þær verði ráðist án nýrrar
lántöku.
Svigrúmið sem skapast
hefur verður jafnframt nýtt til áframhaldandi niðurgreiðslu skulda. Langtímamarkmið bæjarstjórnar er að halda áfram á sömu
braut, með það meginmarkmið að rekstrarniðurstaða Fjallabyggðar sé jafnan jákvæð og að framkvæmdir séu í takti
við rekstrar- niðurstöðu.
Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu 1.860,8 m.kr.
Rekstrarniðurstaða A og B hluta var jákvæð um 150,1 m.kr., eða sem nemur 8,1% af
rekstrartekjum.
Eigið fé í árslok nam 1.903,8 m.kr.
Skuldir og skuldbindingar námu 1.756,9 m.kr. Þar af eru lífeyrisskuldbindingar 797 m.kr.
Handbært fé í árslok var 206,1 m.kr.
Veltufé frá rekstri nam 344,2 m.kr. eða 18,5% af rekstrartekjum.
Skuldahlutfall Fjallabyggðar fyrir A-hluta er 68.4 %
Skuldahlutfall samstæðunnar er 77,1%
Veltufjárhlutfall samstæðunnar er 2,29
Eiginfjárhlutfall samstæðunnar er 62,4%.
Athugasemdir