Rýflega 10 milljónum króna veitt í styrki af styrktarfélaginu Göngum saman
Fimmtudaginn 16. október sl. veitti styrktarfélagið Göngum saman rannsóknarstyrki að fjárhæð kr. 10,3 milljónir króna til vísindamanna á sviði grunnrannsókna á brjóstakrabbameini.
Með þessari styrkveitingu hefur Göngum saman úthlutað alls rúmum 50 milljónum króna til grunnrannsókna á brjóstakrabbameini frá stofnun félagsins fyrir sjö árum. Styrkveitingin fór að þessu sinni fram í Hannesarholti; Grundarstíg 9 Reykjavík að viðstöddu fjölmenni.
Styrkurinn skiptist á milli sex aðila:
• Anna Marzellíusardóttir,. Leit að áhrifabreytingum í erfðaefni fjölskyldna með háa tíðni brjóstakrabbameins. 1,8
milljón króna.
• Borgþór Pétursson: Áhrif sviperfða á lyfjanæmi í brjósta- og eggjastokkakrabbameinum 2 milljónir króna
• Helga Þráinsdóttir: Samspil TGFbeta og Thrombospondin-1 í æðaþeli og brjóstakrabbameini 1,5 milljónir króna
• Jón Þór Bergþórsson: Vefjastofnfrumur og krabbameinsfrumur í brjóstkirtli: eiginleikar þeirra og lyfjanæmi 1 milljón
króna
• Ólafur Andri Stefánsson: Vægi sviperfða sem forspárþættir í brjóstakrabbameinum 1,5 milljónir króna
• Þorkell Guðjónsson: Áhrif USPL1 á eðlilega virkni BRCA1 og hugsanlegt hlutverk í þróun brjóstakrabbameins 2,5 milljónir
króna
Göngum saman byggir starf sitt á þátttöku almennings. Styrkveitingin í ár byggir að mestu leyti á frjálsum framlögum einstaklinga
sem hafa lagt hafa sitt af mörkum með þátttöku í styrktargöngu félagsins, Reykjavíkurmaraþoninu og kaupum á söluvarningi
félagsins. Einnig hafa ýmis félagasamtök, fyrirtæki og einstaklingar lagt Göngum saman lið.
Upplýsingar um félagið er að finna á www.gongumsaman.is
Fjölskylda Kristbjargar Marteinsdóttur, Kittýar, sem var formaður fjáröflunarnefndar Göngum saman þegar hún lést árið 2009,
aðeins tæplega 45 ára gömul, afhenti félaginu 2,5 milljónir í styrktarsjóðinn. Styrkurinn er afrakstur minningargöngu um Kristbjörgu
30. ágúst s.l.. og kvöldskemmtunar í Allanum á Siglufirði sama kvöld. Móðir Kittýar, Sigurlaug Haraldsóttir, skipulagði
gönguna en fjölmargir lögðu málefninu lið.
Sigurlaug Haraldsdóttir, móðir Kittýar heitinnar, á styrkveitngu Göngum saman.
Styrkþegar Gögum saman 2014 ásamt Gunnhildi Óskarsdóttur formanni Göngum saman og Töru og Marteini börnum Kittýar. F.v. Ólafur Andri Stefánsson, Borgþór Pétursson, Anna Marzellíusardóttir, Guðrún Valdimarsdóttir fyrir hönd Helgu Þráinsdóttur, Jón Þór Bergþórsson og Þorkell Guðjónsson.
Athugasemdir