SÆTABRAUÐSDRENGIR
Tónleikar í Siglufjarðarkirkju á þriðjudagskvöld 21 júlí kl. 20.00
Meðlimir Sætabrauðsdrengja eru:
Gissur Páll Gissurarson, Bergþór Pálsson, Viðar Gunnarsson, og heimamaðurinn Hlöðver Sigurðsson ásamt Halldóri Smárasyni sem bæði útsetur og leikur á píanó.
Alltaf stutt í glens og gaman hjá þessum Sætabrauðsdrengjum. Þéttur hljómur við fjörugar útsetningar í fyrirrúmi!
Í þetta skiptið verða þeir á léttum nótum dægurlaga, sem allir kannast við, úr ýmsum áttum og frá ýmsum tímabilum.
Allt frá ljúflingslögum Fúsa Halldórs yfir í Stína ó Stína og Hæ Mambó!
Rómó en bráðskemmtilegir tónleikar sem hlutu fjórar stjörnur í Fréttablaðinu í mars!
"Skemmtilegustu tónleikar sem ég hef farið á"
Grín og glens og frábær stemming"
Missið ekki af söngskemmtuninni!
Miðaverð 3900 á miði.is en 4500 við innganginn
Athugasemdir