Endurreisn Salthússins á lóð Síldarminjasafnsins
sksiglo.is | Almennt | 15.06.2014 | 06:00 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 592 | Athugasemdir ( )
Fyrsta skóflustungan hefur verið tekin og
grafið fyrir sökklum.
Að sögn Örlygs Kristfinnssonar hafa
verið farnar nokkrar ferðir á geymslustað hússins á Akureyri. Þann 13. júni hófst flutningur húspartanna. Svo stórt er þetta
og erfitt viðureignar að enginn annar flutningsmáti var fyrir hendi en sjóleiðina með skipi. Gunnar Júlíusson er þá bjargvætturinn eins
og svo oft áður. Í þessari fyrstu ferð voru bara teknar gólf- og lofteiningar. Siglingin tók sex tíma hvora leið. Í næstu viku er svo
stefnt að því að flytja veggeiningar og mikla bitastæðu.
"Til þess að þetta allt geti tekist
þarf góðan tækjabúnað sem flýtur á grasi, malbiki og sjó og ekki síður mikinn áhuga, skipulagsgáfu og velvilja manna
í kringum okkur - og það er ekki skortur á slíku frekar en áður þegar mikið liggur við hér á safinu" segir Örlygur.
Þetta verður vafalaust glæsilegt
hús og þökkum við Örlygi kærlega fyrir upplýsingarnar og myndirnar.
Hér er verið að hífa einingarnar upp á bíl til að flytja
þær um borð í prammann.
Einingarnar komnar í prammann.
Komnir til baka kl 04:00 að nóttu.
Hér er svo myndband sem Steingrímur Kristinsson gerði þegar skóflustungan var tekin.
Athugasemdir