Sameinað knattspyrnulið Fjallabyggðar
Kosið var um nafn á félaginu og fyrir valinu varð KF – knattspyrnufélag Fjallabyggðar og munu sameinuðu félögin spila undir merkjum KF frá og með 1.janúar 2011.
Auk nafngiftarinnar var kosið stjórn sameinaðs félags og er húnskipuð eftirfarandi aðilum:
Ómar Hauksson
Dagný Finnsdóttir
Þorvaldur Sveinn Guðbjörnsson
Heiðar Gunnólfsson
Sigríður Ingimundardóttir
Hlynur Guðmundsson
Engin bauð sig fram til formanns í sameinuðu félagi og er stjórninni ætlað að finna sér formann á næstu dögum.
Búningar nýs félags verða bláir að lit og varabúningur m.fl. verða hvítir. Lög félagsins voru samþykkt á fundinum og taka þau gildi þegar ÍSÍ, UMFÍ og UÍF hafa lagt blessun sína á þau.
Athugasemdir