Samferða- Styrktar- og minningatónleikar
sksiglo.is | Viðburðir | 30.03.2010 | 20:00 | | Lestrar 173 | Athugasemdir ( )
Þriðjudaginn 30. mars kl. 20:30 verða haldnir styrktar og minningatónleikar fyrir fjölskyldu Valdimars og Jóns Þórs. Tónleikarnir verða í Fíladelfíu, Hátúni 2. Ákveðið hefur verið að hafa beina útsendingu frá tónleikunum í Allanum á Siglufirði. Húsið opnar kl. 20:00 og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Ekki verður rukkað inná tónleikana en tekið verður á móti frjálsum framlögum við inngang. Meðan á tónleikunum stendur ætlar Allinn að selja pizzusneiðar og gos þar sem öll salan rennur óskipt í minningarsjóðinn, þá verða einnig seldar 16" pizzur frá kl. 17:00 þar sem salan rennur öll í minningarsjóðinn.
"Allt sem safnast rennur óskipt til fjölskyldunnar"
Einnig er bent á styrktarreikning fjölskyldunnar fyrir þá sem vilja leggja málefninu lið, 0321-13-000033 , kennitala 070964-5039, Sævör Þorvarðardóttir móðir drengjanna er skráð fyrir reikningnum.
Flytjendur á tónleikunum eru: Bubbi Morthens, KK, hljómsveitin Thin Jim með Margréti Eir Hjartardóttur í fararbroddi, Rockabillybandið The 59'rs, tríóð Gospeltónar og Íris Guðmundsdóttir. Tónleikarnir bera yfirskriftina “Samferða” en tónleikakvöldið gefst fólki kostur á að vera samferða fjölskyldunni smá spöl.

Athugasemdir