Siglfirðingakaffi
sksiglo.is | Almennt | 05.06.2014 | 12:30 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 610 | Athugasemdir ( )
25. maí síðastliðinn var hið árlega Siglfirðingakaffi í
Grafarvogskirkju.
Eins og oft áður þegar Siglfirðingakaffið er haldið var kirkjan
þétt setin og að sjálfsögðu tillti ég mér á aftasta bekk og tók nokkrar myndir.
Á undan Siglfirðingakaffinu var messa og ræða.
Séra Vigfús Þór Árnason og Hólmfríður
Ólafsdóttir djákni þjónuðu fyrir altari.
Um ræðuna sá Björn Jónasson fyrrverandi sparisjóðsstjóri.
Það var auðséð að fólki líkaði ræðan og fólk skemmti sér konunglega við það að hlusta á
Björn.
Kirkjukór Siglufjarðar söng undir stjórn Antoniu Hevesi og Hlöðver
Sigurðsson og Þorsteinn Bjarnason sungu einsöng.
Árgangar 1954, 64, 74, og "84 sáu um Siglfirðingakaffið sem var að messu lokinni
og var hið glæsilegasta.
Gunnar Trausti var eldhress og kátur.
Það vantaði ekkert upp á veitingarnar.
Það var vel mætt í messuna.
Björn Jónasson.
Birkir Jón Jónsson.
Álfhildur og Valbjörn.
Hlöðver Sigurðsson.
Feðgar.Viðar Ottesen og Jóhann Ottesen. Viðar er semsagt faðir Jóa og er til vinstri á mynd.
Brynja Svavarsdóttir og Ingibjörg Halldórsdóttir.
Athugasemdir