Siglfirskar konur gengu saman á mæðradaginn

Siglfirskar konur gengu saman á mæðradaginn Sunnudaginn 8. maí á mæðradaginn kom hópur kvenna saman við Torgið á Siglufirði. Gengu þessar mæður, dætur,

Fréttir

Siglfirskar konur gengu saman á mæðradaginn

Gengið saman á mæðradaginn
Gengið saman á mæðradaginn

Sunnudaginn 8. maí á mæðradaginn kom hópur kvenna saman við Torgið á Siglufirði.

Gengu þessar mæður, dætur, ömmur og vinkonur saman til styrktar krabbameinsrannsóknum í brjóstum í blíðskaparveðri.

Kjarnakonan, Erla Gunnlaugsdóttir skipulagði viðburðinn af miklum myndarbrag í samvinnu við átakið Göngum saman á mæðradaginn, sem er árlegur viðburður á landsvísu.

Erla minntist sómakonunnar Ásdísar Kjartansdóttur (1948-2013) sem varð að lúta í lægra haldi fyrir þessu illvíga sjúkdómi og kynnti tilgang göngunnar í ávarpi sínu áður en hópurinn hélt af stað.

Að loknum skemmtilegum göngutúr fór hópurinn á Sigló Hótel og snæddi þar saman gómsæta kjötsúpu yfir léttu spjalli.

Erla Gunnlaugsdóttir að kynna tilgang göngunnar áður en haldið var á stað


Texti: Kristín Sigurjónsdóttir
Myndir: Kristín Sigurjónsdóttir 

 

 


Athugasemdir

22.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst