Siglfirsku Alparnir opnir í dag frá kl. 11-16
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 06.12.2009 | 07:00 | | Lestrar 721 | Athugasemdir ( )
Fyrsti opnunardagur Skíðasvæðiðsins í Skarðsdal var í gær.
Í tilefni af upphafi skíðvertíðarinnar var frítt fyrir alla á skíði og piparkökur og drykkir í boði fyrir gesti. Opið var í Neðstu-lyftu og T-lyftu. Gott veður og færi var í fjallinu og mættu um 50 manns í Siglfirsku Alpana. Egill Rögnvaldsson umsjónamaður skíðasvæðisins býst við fjölda fólks á skíði í dag og bendir á að árskort fyrir árið 2009 gilda til áramóta.

Árskortasala fyrir árið 2010 er hafin, hægt er að kaupa kortin í fjallinu eða panta árskort í síma 893-5059/467 1806 eða senda pöntun með tölvupósti á egillrogg@simnet.is. Greiða verður kortin fyrir 1. janúar 2010 ef fólk vill nýta sér 2000 króna afslátt frá fullu verði. Verð á barnakorti með afslætti kostar kr. 5.000, fullorðinskort kr. 11.000 & hjónakort kr. 21.000. Framhaldsskólanemar og æfingakrakkar skíðafélaga fá árskort fyrir árið 2010 á sama verði og börn og unglingar eða kr. 5.000 til áramóta.
Skíðasvæðið verður opið í dag sunnudag frá klukkan 11.00 – 16.00. (ef veður leyfir)

Fleiri myndir HÉR. Nánar um Siglfirsku Alpana HÉR

Athugasemdir