Siglufjarðar Seigur ehf

Siglufjarðar Seigur ehf Þessa dagana eru iðnaðarmenn frá JE Vélaverkstæði, Raffó og Siglufjarðar Seig að leggja lokahönd á stækkun á Kidda Lár úr 15 í 30

Fréttir

Siglufjarðar Seigur ehf

Bíldsey SH-65.
Bíldsey SH-65.
Þessa dagana eru iðnaðarmenn frá JE Vélaverkstæði, Raffó og Siglufjarðar Seig að leggja lokahönd á stækkun á Kidda Lár úr 15 í 30 tonn og mun báturinn heita eftir breytingar Bíldsey SH-65.

 Útgerðarfélagið Sæfell í Stykkishólmi mun gera bátinn út. Fréttaritari tók myndir af bátnum og búnaði sem er með 1000 herstafla Yanmar Extra Turbo vél.

Til gamans má geta þess að togararnir Stálvík og Sigluvík voru með 1750 herstöfl. Allur búnaður og frágangur í þessum bát er til fyrirmyndar og verður báturinn sjósettur á næstu vikum.



Vélarrúm



Vélarrúm



Vélarrúm



Vélarrúm



Unnið á dekki







Séð ofan í lest



Séð fram í lúkar og stýrishús



Nokkrir bátat undir hjá Siglufjarðar Seig. Scania vél bíður þess að fara í bátinn fyrir miðju sem fer til Danmerkur,

Texti og myndir: GJS


Athugasemdir

21.desember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst