Skíðasvæðið í Skarðsdal. Myndband
Í dag verður opið frá kl 10-16. Veðrið kl 08:00
S-gola, 5 stiga hiti, léttskýjað og sólin að brjótast í gegn.
Færið er troðinn vorsnjór. Tróðum Neðstasvæðið og
Hálslyftubakka í gærkveldi, annað er troðið nú í morgun. Það mun verða mjúkt færi í dag, en ágætis
færi fyrir utanbrautarskíðun.
Skarðsdalurinn er búinn að vera aldeilis flottur síðustu 12 daga logn, sól og
snjór í mörgum metrum. Utanbrautar- færi eins og það gerist bezt. Fallið frá efstu brekkum og niður að skála er 500
metrar.
Páskarnir eru að koma og þá að sjálfsögðu kemur þú
skíðagestur góður á Sigló í fegurðina.
Hér er videó sem tekið var upp í Skarðsdalnum síðustu helgi. Myndataka og myndvinnsla Gunnlaugur S. Guðleifsson.
Skíðafjör 1 from Gunnlaugur Guðleifsson on Vimeo.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
Athugasemdir