Skíðasvæðið í Skarðsdal 27 febrúar

Skíðasvæðið í Skarðsdal 27 febrúar Opið verður í dag frá kl 13:00-20:00, veðrið er mjög gott logn, -5c° og léttskýjað og færið er mjög gott nýr snjór á

Fréttir

Skíðasvæðið í Skarðsdal 27 febrúar

Ljósmynd Egill Rögnvaldsson
Ljósmynd Egill Rögnvaldsson
Opið verður í dag frá kl 13:00-20:00, veðrið er mjög gott logn, -5c° og léttskýjað og færið er mjög gott nýr snjór á öllu svæðinu, alveg lista færi fyrir alla skíðaiðkendur, nú er um að gera að drífa sig í fjallið, brekkur við allra hæfi, 3 lyftur keyrðar samtals lengd 2 km. og brekkur um 2,3 km. og breiddin eftir því, gerist ekki betra, gönguspor við Hól.

Snjócrossbraut verður tilbúinn um kl 16:00 í dag tilbúinn til æfinga fyrir mótið sem fer fram á laugardaginn 28. febrúar kl 14:00. Búast má við 1000-1500 gestum yfir helginna svo ég mæli með að gestir mæti tímalega á laugardaginn og sunnudaginn, við opnum lyftur báða daga kl 10:00 og lokum kl 16:00.

Velkomin til Siglufjarðar (Fjallabyggð) á skíði og snjósleða.

Starfsmenn


Athugasemdir

16.janúar 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst