Slitþolin möl til malbikunar

Slitþolin möl til malbikunar Flutningaskipið Helena lagðist að Óskarsbryggju á Siglufirði í kvöld um klukkan 19:00. Skipið er fulllestað sérstakri

Fréttir

Slitþolin möl til malbikunar

Flutningaskipið Helena lagðist að Óskarsbryggju á Siglufirði í kvöld um klukkan 19:00. Skipið er fulllestað sérstakri slitþolinni malartegund sem notuð verður í malbikunarblöndu á þjóðveginn frá norðurenda Lageyrarvegar allt inn í og gegn um Héðinsfjarðargöng og inn í Héðinsfjörð. Áætlað er að það verk hefjist nú seinnipart ágústmánaðar.
Þetta er farmur númer 2 af fleirum sem eiga eftir að koma til verksins. Fyrsti farmurinn kom til Siglufjarðar á síðastliðnu ári.

Myndin var tekin klukkan 18:50 er fyrstu landfestar  voru komnar á polla.

Á myndinni sjást risastórir efnisflutningabílar og vinnuvélar bíða eftir að uppskipun hefst.


Athugasemdir

23.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst