Spánarferđ hjá nemendum viđ Menntaskólann á Tröllaskaga
Sex nemendur frá Menntaskólanum á Tröllaskaga þau Anna Lára Ólafsdóttir, Arndís Lilja Jónsdóttir, Helga Eir Sigurðardóttir, Ingibjörg Ellen Davíðsdóttir, Magnús Andrésson og Þórhildur Sölvadóttir sem stunda nám við áfangan Comeníus/Vatn og líf héldu til Spánar þann 9. mars sl. Ásamt kennara sínum Ingu Eiríksdóttir.
Comeníus er alþjóðlegt verkefni sem skólinn tekur þátt í ásamt samstarfsfólki frá Ítalíu, Spáni og Þýskalandi. Comeníusarverkefnið snýst um vatn, nýtingu vatns, skort á vatni og fleira sem tengist þessari undirstöðu lífs á jörðinni. Unnið er að fjölþjóðlegu dagatali sem á að innihalda myndir af vatni frá öllum löndunum sem teknar eru af nemundum.
Hópurinn dvaldi á Castellón á Spáni frá mánudegi til föstudags, dagskráin var þétt og meðal annars var fræðsla um nýtingu vatns á Spáni, skoðað kirkju og myllu, labbað upp Fadrí turninn, heimsótt bæjarstjórnina, farið til Valencia og hitt forseta samfélagsins, skoðað kastalann í Peniscola og síðast en ekki síst kynnst menningunni á Spáni því nemendurnir dvöldu inná heimilum spænsku nemandanna á meðan á heimsókninni stóð.
Í september sl. Komu nemendur frá Ítalíu, Spáni og Þýskalandi í heimsókn í MTR og unnu að þessu sama verkefni. Næsta ferð tengd verkefninu er áætluð í maí og þá verður haldið til Þýskalands.
Ingibjörg, Helga Eir og Arndís Lilja í skólanum.Í heimsókn hjá bæjarstjórninni.Kennarar og nemendur ásamt bæjarstjórn.Magnús Andrésson.Anna Lára, Helga Eir og Ingibjörg við vatnið hjá myllunni.Hluti af íslenska hópnum úti að borða ásamt spænsku stelpunum.Leiðin upp að kastalanum í Peniscola.Kastalinn í Peniscola sem nemendur skoðuðu síðasta daginn.
Athugasemdir