Stærsta skemmtiferðaskipið til þessa!
Þriðjudaginn 30. júlí verður líflegt um að litast á Siglufirði. Skemmtiferðaskipið Voyager leggur að bryggju kl. 8:00 og munu 550
belgískir farþegar eyða deginum á Siglufirði. Þeim til viðbótar eru yfir 200 áhafnarmeðlimir um borð – svo gera má
ráð fyrir tæplega 800 manns á ferð um bæinn á þriðjudag, til viðbótar við aðra daglega ferðamenn! Skipið stoppar lengur
en mörg önnur og verður hér fram til kl. 16:00.
Gestirnir verða í höfn í átta klukkustundir – sumir heimsækja Síldarminjasafnið, en aðrir ekki – en ljóst er að allir gestir
munu hafa mjög rúman tíma til þess að ganga um bæinn og skoða staðinn.
Listamenn, gallerí og vinnustofur eru því sérstaklega hvattar til að hafa opið hjá sér nk. þriðjudag – ekki spillir fyrir að
hafa opnar dyr, eða skilti á stéttinni, til þess að draga gestina enn frekar að.
Skipið er að öllum líkindum eitt það allra stærsta sem nokkurn tíma hefur lagst að bryggju á Siglufirði, en það telur
rúmlega 15.000 tonn og er 153 metrar á lengd. Skipið er hið allra glæsilegasta og má sjá myndir og frekari upplýsingar hér:
http://www.voyagesofdiscovery.co.uk/ship.php?ship_id=897
Athugasemdir