Stangveiðidagur hjá SR-Byggingarvörum
sksiglo.is | Almennt | 21.06.2014 | 06:00 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 506 | Athugasemdir ( )
Síðastliðinn laugardag var mikið um að vera í SR búðinni og
margir lögðu leið sína þangað til að skoða það nýjasta í stangveiðisportinu.
Þeir Jónas og Matti hjá Veiðivörum.is voru að kynna
stangveiðigræjur og dót fyrir gestum og gangandi.
Ægir Bergs grillaði pylsur fyrir stangveiðiáhugamenn og konur og það voru
ansi hreint margir ánægðir með þá hugmynd.
Eftir grillið og kynninguna á stangveiðivörunum hjá þeima Jónasi
og Matta var haldið suður í Hólsá, þar sem þeir Jónas og Matti voru með kastnámskeið. Allavega 10 manna hópur sást
æfa sig í fluguveiðiköstum á bökkum árinnar og virtust piltarnir ná þessu bara nokkuð vel.
Hér koma svo nokkrar myndir frá stangveiði og grilldeginum mikla.
Hér eru þeir Matti og Jónas frá Veiðivörum að kynna vörurnar sem voru stórglæsilegar.
Guðmundur Gauti kom nú samt bara til að kaupa kústa. Hann kíkkaði nú samt á stangveiðvöruúrvalið.
Óli Stellu græjaði sig upp fyrir sumarið.
Þarna var Ægir í S-inu sínu og grillaði eins og herforingi.
Fjöldi fólks kom við í SR og fékk sér eina eða tvær grillaðar pylsur.
Sissa var ansi dugleg að raða tómatsósu, steiktum lauk, remúlaði og kartöflusalati á pylsurnar.
Sandra, Tinna og Mirra voru yfir sig ánægðar með pylsuveisluna.
Friggi Guggu er hér á pylsu númer 3. Þess má geta að ég hitti Frigga í sjoppunni á Ólafsfirði og sjoppunni á
Dalvík sama dag, og þá var hann reyndar líka með pylsur.
Hér bíður hann Mikael Daði var alveg snarspenntur eftir því að kastnámskeiðið byrji. Ég er bara ekki frá því
að hann hafi verið langbestur að kasta flugu.
Hér er hópurinn svo að græja sig til.
Og byrjaðir að æfa köstin.
Athugasemdir