Sticks & Sushi á Hannes Boy og Todmobile á Kaffi Rauðku
Föstudaginn 14. nóvember er Sticks & Sushi kvöld á Hannes Boy! Verð á mann 2.990 kr. Opið er frá kl 18:00 - 22:00. Borðapantanir í
síma 461-7730 eða á eldhus@raudka.is.
Sama kvöld spilar Todmobile á Kaffi Rauðku. Tónleikarnir hefjast kl 21:00 og húsið opnar kl 20:30. Miðaverð er 3.000 kr og aldurstakmark er 18 ár.
Forsala er hafin á kaffihúsinu.
Todmobile er nú á tónleikaferð um landið í tilefni að útgáfu nýju plötunnar sinnar, Úlfur. Platan inniheldur 12 ný
lög, 3 af þeim eru gerð í samstarfi við Jon Anderson úr YES og Steve Hackett úr Genesis.
Athugasemdir