Stór dagur í dag fyrir landsmenn alla

Stór dagur í dag fyrir landsmenn alla Í dag klukkan nákvæmlega 10-27-21 hrópaði ráðherrann eftir niðurtalningu með flestum viðstöddum; “og nú” og þrýsti á

Fréttir

Stór dagur í dag fyrir landsmenn alla

Og nú, sagði ráðherrann KLM
Og nú, sagði ráðherrann KLM
Í dag klukkan nákvæmlega 10-27-21 hrópaði ráðherrann eftir niðurtalningu með flestum viðstöddum; “og nú” og þrýsti á hnappinn og við drundu nokkrar sprengingar er síðasta haftið á milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar var rofið í Héðinsfjarðargöngum. SkSigló var auðvitað á staðnum og tók góðan slatta af myndum, sem verða þó að bíða betri tíma til birtingar.

SKSigló fer í dag í fylgd verktaka í gegnum göngin til Ólafsfjarðar, til veislu til heiðurs starfsmönnum við gangagerðina, veislu sem þar er haldin klukkan  16:00 í Tjarnarborg í Ólafsfirði.

Athugasemdir

29.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst