Stórt snjóflóð fellur

Stórt snjóflóð fellur Stórt snjóflóð hefur fallið í Skútudal líklega í nótt eða gærkvöldi. Þegar siglo.is hafði samband við lögregluna var henni ekki

Fréttir

Stórt snjóflóð fellur

Stórt snjóflóð úr  Hestskarðshnjúk
Stórt snjóflóð úr Hestskarðshnjúk

Stórt snjóflóð hefur fallið í Skútudal líklega í nótt eða gærkvöldi. Þegar siglo.is hafði samband við lögregluna var henni ekki kunnugt um flóðið. Snjóflóðaeftirlitsmaður var þó á svæðinu er siglo.is var á ferð í Skútudalnum þannig að meiri fréttir ættu að fást síðar. Flóðið virðist koma nánast frá toppi Hestskarðshnjúks og skipta sér svo því það má sjá flóðið á all nokkrum stöðum.


Á einum stað sést hvar flóðið fer yfir veginn sem liggur í gegnum Héðinsfjarðargöng í litlu mæli þó. Annað flóð hefur líka fallið innar í Skútudal milli gangnamunnans og hitaveituskúranna.

Hér má greina þar sem flóðið fór yfir veginn.



Hér má sjá flóðið sem féll innar í Skútudal.




Athugasemdir

12.mars 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst