Takk fyrir mig!! ( Í bili allavega )
sksiglo.is | Rebel | 04.07.2014 | 12:30 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 1118 | Athugasemdir ( )
Á dauða mínum átti ég von, en ég átti alls ekki von á
því að ég ætti eftir að skrifa fréttir fyrir vefmiðil. Maður sem er lesblindur, vitlaus og með athyglisbrezt á frekar háu stigi er
kannski ekki alveg það sem fólk sér fyrir sér þegar það hugsar um vef-blaðamann, og hvað þá ef hann er lítill, feitur og
sköllóttur með mikið skegg. Ég fer nú bara næstum þvi að hlæja þegar ég hugsa um þetta sjálfur. Ef ég til
dæmis hugsa um blaða eða fjölmiðlamann þá sé ég Egil Helgason eða Clark Kent í gerfi Súperman fyrir mér. Kannski er
ég bara sambland af þeim báðum, hver veit? Allavega á ég svona súperman galla en hann er bara notaður svona spari og við alveg sérdeilis
sérstök tilefni(spyrjið bara Ólöfu). En svona fór þetta nú samt hjá þeim á Siglo.is, þeir réðu líklega arfavitlausann mann í jobbið ef maður má sletta
örlítið.
Vafalaust hafa margir haft litla trú á kallinum í blaðamennsku og ég var
líklega einn af þeim sem hafði hvað minnsta trú á þessum gjörning en ég held og vona að ég hafi komist svona skítsæmilega
frá þessu öllu saman fyrir utan stafsetningavillur, vitlausa beygingu nafna, gleymt að skrifa um fréttir sem ég átti líklega að skrifa um og
tekið myndir af einhverjum oftar en ég átti að gera. Nú er svo komið að mér finnst ég vera kominn í smá hring með
fréttaflutning og stundum finnst mér eins og ég sé að endurtaka mig og þess vegna tel ég að það eigi að hleypa einhverjum nýjum
og ferskari aðila að starfinu. Líklega (reyndar ekkert líklega, það er staðfest) eru líka margir orðnir hundleiðir á kallinum með
myndavélina og hann orðinn hundleiður á að vera alltaf með myndavélina á lofti og eiginlega bara hundleiður á sjálfum
sér.
Ég hef fengið ótal sinnum að heyra að eitthvað hafi verið flott sem
maður hefur rambað á og svo hef ég líka ótal sinnum fengið að heyra að ég ætti að fjalla um eitthvað allt annað ég hef
fjallað um. Því miður kann ég ekki að vera rannsóknarblaðamaður, eiginlega kann ég bara alls ekki að vera blaðamaður yfir
höfuð og ég er farinn læra það ansi hreint vel að maður getur ekki gert alla ánægða. Sem er bara alveg hreint ljómandi gott og
eiginlega alveg lífsnauðsynlegt að allir séu nú ekki alltaf ánægðir með allt sem maður gerir. Ef það væri svoleiðis myndi
maður líklega aldrei læra neitt af viti.
Eitt af því sem kom mér mezt á óvart með vefblaðamennskuna er
það hversu óhemju mikill tími fer í að vinna fréttir. Að vinna frétt er semsagt ekki bara að smella af einum til tveimur myndum og skrifa
smá texta og flengja því svo inn á veraldarvefinn flest öllum líklega til ómældrar óánægju og ama. Það þarfa
að taka fullt af myndum, það þarf að fara yfir myndirnar og sortera. Það þarf að skrifa texta, það þarf að laga textann aftur til. Svo
þarf ég að láta hana Ólöfu mína fara yfir textann (þannig að þeir sem eru óánægðir með nefnifalls,
þolfalls, þágufalls og eignafalls-sýkina, stafsetningavillurnar, innsláttavillurnar, orðauppröðun o.sv.fr. þá vil ég bara segja
þetta : það er nú allt saman henni Ólöfu minni að kenna og þið getið bara rifist um þetta við hana næst þegar þið
hittið hana, það er jú hún sem er prófarkarlesarinn minn). Svo þarf að merkja myndirnar. Þegar búið er að merkja myndirnar
þá þarf að........ æii ég nenni bara ekki að telja þetta upp. En allavega er þetta hörkuvinna. En jafnframt mjög skemmtileg vinna og
ég er virkilega þakklátur fyrir að hafa fengið að reyna mig í þessu jobbi og vonandi á ég eftir að reyna mig áfram og meira
í jobbinu seinna meir.
En núna ætla ég semsagt að taka mér frí í allavega 2 til 3
mánuði og sjá svo til með haustinu hvað gerist. Nú kemur hress og skemmtilegur aðili í staðinn fyrir mig í vef-blaðamennskuna með ferska
vinda af allskonar fréttum. Bæði skemmtilegum og svo hugsanlega einhverjum hundleiðinlegum líka, sem er jú algjör nauðsyn. Reyndar neitaði ég
að skrifa um leiðinlegar fréttir þegar þá örsjaldan að ég var beðin um það. Ég bara kann það ekki. Ég á
hugsanlega (reyndar mjög líklega,eiginlega alveg 100%) eftir að senda einhverjar greinar eða myndir inn á Siglo.is í fríinu og framtíðinni ef ég dett niður á eitthvað sem ég
þarf nauðsynlega að koma til skila, og líklega verður það eitthvað mis-viturt orðagjálfur á stafrænu formi(yfirfarið af henni
Ólöfu minni) og ein til tvær myndir sem verða yfir eða undirlýstar. Jafnvel myndbönd. Það er jú það sem ég kann sem allra
minnst í en finnst eitt af því allra skemmtilegast að vinna í.
Takk fyrir mig í bili Siglo.is og takk fyrir þið sem nenntuð að lesa þessa vitleysu sem ég hefi hent hérna inn. Ég vil líka nota
tækifærið og þakka þeim sem sendu mér myndir, bentu mér á eitthvað sem var gaman að fjalla um o.sv.fr. Þið eruð
frábær!!
Endilega haldið þið áfram að senda okkur upplýsingar um eitthvað
skemmtilegt á sksiglo@sksiglo.is .
Ég óska nýjum fréttamanni (og hugsanlega fréttakonu seinna meir)
velfarnaðar í starfi og vonandi hafið þið jafn gaman að þessu og ég hef haft.
Áfram Siglo.is!!
Kv. Rolf
Athugasemdir